Um mig

Ég heiti Hólmfríður Gestsdóttir og á og rek Íslenskuhornið og hef gert það frá árinu 2012. Velkomin(n) í heimsókn!

Ég er íslenskufræðingur frá Háskóla Íslands og hef kennt íslensku frá árinu 2008.

Í frístundum finnst mér skemmtilegt að elda og borða góðan mat, enda óforbetranlegur sælkeri. Ég hef líka áhuga á heilsusamlegum lífsstíl og stunda jóga reglulega. Ég er með óslökkvandi áhuga á tungumálum og einn af draumum mínum er að koma mér fyrir í fallegum frönskum bæ til að rifja upp frönskuna, sleikja sólina og njóta lífsins!

Ég er gift og á tvær dætur. Hér á myndinni má sjá mig ásamt fjölskyldunni minni í sumarfríinu sumarið 2020 á Rauðasandi á Vestfjörðum. Þar var notalegt að vera!