Prófarkalestur
Ert þú að fara að skrifa mikilvæga ritgerð eða aðra ritsmíð? Vantar þig aðstoð við textaskrifin? Hvort sem þú þarft aðstoð við að útrýma innsláttarvillum, málvillum eða ambögum, er ég rétta manneskjan fyrir þig. Þú einbeitir þér að því að koma skilaboðunum á framfæri – ég sé til þess að þau séu á vönduðu máli.
Ég hef einnig tekið að mér að leiðbeina fólki við textasmíðar, þannig að textinn verði þægilegri og auðlesnari. Til að halda athygli lesandans, þarf textinn að vera beinskeyttur og markviss og þar get ég komið að liði.
Hafðu samband til að fá tilboð eða panta yfirlestur.
Umsagnir
Hún Hófí er algjör meistari! Ég hafði samband við hana þegar ég var að leggja lokahönd á BA-ritgerðina mína í félagsráðgjöf. Hún tók mjög vel á móti mér og skildi mínar aðstæður, meðal annars hversu mikil hindrun ritgerðin var orðin fyrir mér. Þökk sé Hófí þá fékk ritgerðin mín nýtt líf. Hún kom textanum mínum yfir á faglegt mál og gaf mér ráðleggingar sem að mínu mati gerðu ritgerðina mína enn þá betri. Ég er henni ævinlega þakklát og mæli virkilega með henni!
Við heyrðum í Hólmfríði með mjög stuttum fyrirvara, til að fara yfir BA-ritgerðina okkar. Fljót og góð þjónusta. Hún lagaði texta, málfarsvillur og kom með góðar athugasemdir. Hólmfríður fær okkar bestu meðmæli.
Ég ákvað að hafa samband við hana Hólmfríði eftir að ég ráðfærði mig við samnemanda minn sem gaf henni einstaklega góð meðmæli. Hólmfríður stóð vel undir þeim meðmælum samnemanda míns og gott betur en það. Get ég ekki annað en þakkað henni innilega vel fyrir vel unnið starf, hún las hratt og örugglega yfir og kom með mjög gagnlegar ábendingar. Ég er henni einstaklega þakklát.
Hólmfríður las yfir meistararitgerðina mína í lögfræði vorið 2022. Ábendingarnar sem hún kom með voru mjög góðar og bættu ritgerðina mikið. Einnig kom hún með útskýringar varðandi málfar og orðalag sem mun gagnast mér í starfi mínu. Hún fær mín bestu meðmæli!
10/10. Ég fann vefsíðuna hennar Hólmfríðar deginum fyrir skil og hún bjargaði mér alveg. Frábær prófarkalestur, snögglega afgreitt og einnig fékk ég mjög góðar leiðbeiningar um hvernig ég ætti að raða köflunum í ritgerðinni. Ég mæli hiklaust með henni!
Eftir ábendingu fékk ég Hólmfríði Gestsdóttur til þess að prófarkalesa meistararitgerð (M.Ed.) sem ég nýverið lauk við. Ég hafði samband við hana með stuttum fyrirvara þar sem ég hafði ekki ætlað mér endilega að láta prófarkalesa ritgerðina. Hólmfríður brást skjótt við beiðni minni og vann verkið hratt og ákaflega vel og af mikilli nákvæmni. Ábendingar og tillögur hennar voru faglegar og bættu textann og ég var ákaflega sátt við hennar framlag. Allar tímasetningar stóðust. Hólmfríður Gestsdóttir fær mín bestu meðmæli.
Hófí las yfir meistararitgerðina mína veturinn 2019–2020. Hún er nákvæm í yfirlestrinum og kom með gagnlegar ábendingar um bætt málfar og uppbyggingu setninga. Mér fannst frábært að vinna með henni og hún var mér ávallt innan handar ef ég hafði einhverjar spurningar eða lenti í vanda með töfluskrár o.fl. Ég mæli hiklaust með henni.
Hólmfríður las yfir meistararitgerðina mína í lögfræði vorið 2016. Sem yfirlesari stóð hún sig einstaklega vel, hún skilaði alltaf af sér á umsaminni dagsetningu. Einnig voru útskýringar á betrumbættara orðalagi sem ég lærði mikið af. Hólmfríður er þægileg í samskiptum, fagmannleg og mæli ég hiklaust með henni sem yfirlesara!