Velkomin í Íslenskuhornið!

Komdu sæl(l)!

Ég heiti Hólmfríður Gestsdóttir, venjulega kölluð Hófí. Ég er íslenskufræðingur frá Háskóla Íslands og kenni íslensku fyrir útlendinga, bæði sjálfstætt og hjá Retor fræðslu. Á þessari síðu kynni ég þá þjónustu sem ég býð fram.

Ég kenni nemendum íslensku, bæði í hópum og í einkatímum. Ég hef hjálpað fullorðnum útlendingum að læra íslensku frá árinu 2008 en einnig hjálpað tví- eða fjöltyngdum nemendum að styrkja sig í íslenskum orðaforða og lestri. Ég hef einnig tekið að mér stuðningskennslu í íslensku fyrir Íslendinga, t.d. tengt lesskilningi, málfræði og stafsetningu. Þá tek ég einnig að mér prófarkalestur, sjá hér.

Ef einhverjar spurningar vakna, eða ef þig vantar kennslu í íslensku, hafðu þá endilega samband við mig.